This site has limited support for your browser. We recommend switching to Edge, Chrome, Safari, or Firefox.

Sign up and get 15% OFF your first order! - Receive a complimentary Gua Sha with every order of $150 or more.

Cart 0

Congratulations! Your order qualifies for free shipping You are $100 away from free shipping.
Sorry, looks like we don't have enough of this product.

Products
Add order notes
Subtotal Free
View cart
Shipping, taxes, and discount codes are calculated at checkout

ANGAN SKINCARE

DEKURGUSA 9.juli

Við bjóðum þér aftur í Dekurgufu – nærandi upplifun þar sem náttúruleg vellíðan, mild jurtagufa og líkamsdekur mætast.

Í ilmandi jurtagufu færðu tækifæri til að hægja á, slaka á og tengjast líkama þínum og náttúrunni. Með samspili gufu, ilmmeðferðar, ljúfra tóna og núvitundar fær líkaminn að mýkjast og hugurinn að róast.

Í athöfninni notum við húðvörur frá ANGAN, ilmkjarnaolíur og íslenskar jurtir sem næra húðina og vekja skynfærin. Markmiðið er að skapa róandi og endurnærandi upplifun sem skilur eftir sig jafnvægi og vellíðan.

Að upplifun lokinni fær hver gestur gjafapoka með sér heim til að lengja vellíðunatilfinninguna.

ANGAN workshop — Icelandic skincare ritual experience

ANGAN Dekurgusa í Fúsk

Haldin 9.julí kl: 18.30

Komdu og njóttu nærandi upplifunar þar sem mild jurtagufa, ilmur, dekur og núvitund skapa djúpa slökun fyrir líkama og huga.

Hvenær: 9. júlí kl. 18:30
Hvar: Fúsk Sauna

Við notum húðvörur frá ANGAN, ilmkjarnaolíur og íslenskar jurtir til að skapa hlýja og endurnærandi stund.

Gjafapoki fylgir öllum gestum heim.

Leiðendur

  • Íris Laxdal, stofnandi ANGAN, leiðir húðvörudekur og tengingu við jurtir og ilm.
  • Olga Hörn, gufumeistari, sér um hitann og flæðið í gufunni.

Taktu með

  • Sundföt (mælt er með að mæta í sundfötum undir fötunum).
  • Tvö handklæði – annað til að sitja á og hitt til að þurrka sér.
  • Vatnsbrúsa.
  • Sundskó ef á að fara í sjóinn.
  • Þægileg föt eða slopp til að fara í eftir gufuna.

Nánari upplýsingar

Mæting: Fúsk Sauna

kort hér:

Takmarkað sætaframboð – tryggðu þér pláss í tíma!

[{"variant_id":"42063905259586" , "metafield_value":""}]